All about and around Landmannalaugar in the highlands of Iceland. 
    Built on personal experience and taste of insiders.
    Though experience is big and taste is great, try other issues as well, to be sure.
  
   á Landmannalaugar.info á íslenskum síðum allstaðar

Smári og Nína 
 
Nina

Við erum...

Myndlistarmenn, verslunarrekendur, veðurathugunarmenn, teiknimyndasöguhöfundar, upplýsingaþjónustuaðilar, landbúnaðarverkamenn, heimasíðusmiðir, silungsveiðimenn, norðurljósaathugendur, teiknarar, fiskverkunarfólk, vitaverðir, textahöfundar, matreiðslufólk, hundatemjarar, bókbindarar, bílstjórar, smalar, afgreiðslufólk, hugmyndasmiðir, ljósmyndarar, ræstitæknar, ferðamenn, fræðimenn, auglýsingahönnuðir, heimspekingar og vegagerðarmenn.

En ef við þurfum að sanna það með pappírum, þá erum við bara útskrifaðir myndlistarmenn og annað okkar með bílpróf, auk þess að vera skráðir meðlimir í verslunarveldinu Fjallafangi.

Svo má líka orða það svona:  Við erum, hvort um sig, sambland af letingjum og dugnaðarforkum, félagsverum og mannafælum, stórborgarbörnum og sveitafólki, ævintýrafólki og heima-er-best-liði, fíflum og alvörugefnum einstaklingum.

 



Smári

 
  
 
   Nína Ivanova & Ómar Smári Kristinsson © 2003—2009


last updated - 03.04.2009