|
Reiðleiðir
Þónokkuð
er um skipulagðar hestaferðir um Fjallabakssvæðið,
þar sem Landmannalaugar eru einn viðkomustaða.
Þeir sem ekki eru í slíkum hópi, eiga líka kost á reiðtúr.
Á staðnum er rekin útreiðarþjónusta:
Hraunhestar.
Boðið er upp á reiðtúra með leiðsögn um nokkur tilkomumestu
svæða í kringum Landmannalaugar. Hægt er að velja á
milli eins, tveggja og þriggja tíma ferða. Jafnvel
er hægt að fara með hóp í dagsferð. Panta skal ferðirnar
með nokkrum fyrirvara.
Hjólreiðar
Aðeins
skal hjóla þar sem bílar mega keyra. Sumir standa í
þeirri meiningu að hjóla megi Laugaveginn.Það
er bannað.
Yfirleitt eru allar aðkomuleiðir að Landmannalaugum
erfiðar fyrir reiðhjólafólk, en nálægustu vegirnir eru
harðir og vel nothæfir.
Styttri túrar geta semsagt verið skemmtilegir en fyrir
minni hjólreiðagarpa er æskilegra að nota áætlunarrútuna
til langferða. Hún getur flutt reiðhjól.
|